Verkefni
Ráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneytiðKafli
Börn
Framvinda
Starfshópur sem mun greina þjónustuþörf og nauðsynleg úrræði sem gætu dregið úr líkum á áföllum eða áhrifum áfalla í lífi barna hefur hafið störf og er vinna hans á fyrstu stigum, en hann kemur mánaðarlega saman. Unnið er að kortlagningu og stöðugreiningu. Liður í því að gera grunnmælingu á áföllum og velferð barna fólst í að leggja skimunarlista fyrir börn á aldrinum 14-16 ára fyrir börn um land allt í fyrirlögn íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vorið 2023. Sú skimun gefur grunnstöðu sem eru mikilvæg gögn fyrir verkefni starfshópsins, mögulegar aðgerðir og eftirlit með árangri þeirra.