Uppbygging innviða á áfangastöðum ferðamanna
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra boða til upplýsingafundar til að kynna úthlutun fjármuna til uppbyggingar innviða á áfangastöðum ferðamanna, vítt og breitt um landið.
Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu mánudaginn 9. mars kl 10:30.
Auk ráðherranna verða fulltrúar frá framkvæmdaaðilum sem segja frá verkefnum á sínum vegum.